Rúðuþurrkur
Fór í gær ég að hitta Brjóstaklúbbinn hjá Elfu. Það var mjög fínt, alltof langt síðan við höfum hist. Ég ákvað að drekka ekki áfengi og er afar sátt við þá ákvörðun í dag. Kvöldið endaði á að Gulla og Bragi fóru á djammið en hinir heim. Ég keyrði þau á Players en það gekk ekki mjög vel þar sem rúðuþurrkurnar eru ennþá bilaðar og rigning úti. Það er ekki gott fyrir svona áttavillta manneskju eins og mig. En með aðstoð farþegana fór þetta allt saman vel fram, nema kannski þegar Gulla bauðst til að stýra. Ég komst þó heil á húfi heim, veit ekki með Gullu og Braga hverju þau hafa fundið upp á eftir að ég skildi við þau.
Í dag er 19.júní sem þýðir að Kvennadagurinn er runninn upp þetta árið. ÉG hefði nú átt að skella mér í Kvennahlaupið en geri að kannski bara næst eða þarnæst, best að vera alveg róleg. Hef einu sinni tekið þátt í Kvennahlaupinu en það var í fyrra. Þá dró Gulla mig með sér og dró mig yfir holt og hæðir, minnir að við höfum tekið 5 km. Hefði frekar átt að hlaupa í ár, þar sem bleikir bolir eru í boði, en bláir í fyrra. Bleikt er meira svona ég. En ætli ég eigi svo sem ekki nóg af bleikum bolum.
Nú fer að styttast í undirskrift á Hraunteignum, næsta þriðjudag fer það fram. Nú eru tvær vikur í Danmerkur- og Svíþjóðar ferð. Verður fínt að komast í sumarfrí og hlaða batteríin. Er að spá í að skella mér í sófann og taka smá lögn þar sem Baldur er steinsofandi á svölunum.



0 Comments:
Sendu inn athugasemd
<< Home