Geymsla dauðans
Bloggleti í hámarki þessa dagana, enda mikið að bralla. Eyjólfur fór í Vatnaskóg síðastliðinn föstudag og ætlar að vera í viku. Sýnist þeir ekki vera að fá neitt sérstakt veður, vona að rætist úr því næstu daga. Tengdó kom og var hjá okkur um helgina. Við skrifuðum undir söluna á íbúðinni okkar síðastliðinn fimmtudag. Við eigum að afhenda 1.sept sem er bara mjög gott. En kaupendurnir (Víetnamarnir) þurftu að fá geymsluna strax og það var alveg spauglaust. Við vorum allan laugardaginn í að tæma geymsluna og þeir að fylla hana. Við pöntuðum miðstærð af sendibíl sem við fylltum að dóti til að fara með á haugana. En það var bara dropi í hafið, annað eins var eftir. Nú eru Massi og Arnaldur að flytja það í skúrinn hjá mömmu. Ég skil ekki hvaðan þetta dót hefur komið, þvílíkt safn og geðveiki. Held það verði lítið mál að flytja búslóðina miðað við þetta.
Á laugardagskvöldið fórum við í innflutnings- og útskriftarveislu hjá Sólrúnu og Sigþóri. Afar vönduð veisla eins og þeim einum er lagið. Það var rosa fjör og tók Arnaldur Indíranagasæja af svölunum sem ræðu til Sólrúnar og Sigþrórs, það var mjög skondið, fólk vissi til að byrja með varla hvað það átti að halda . Á sunnudeginum tók við svakaleg þynnka með uppköstum og öllu. Þessi elska hún tengdamamma bjargaði mér alveg með verkjalyfjum og að passa Baldur fyrir okkur á meðan við sváfum. Svo komu víetnamarnir á sunnudeginum aftur til að mæla fyrir gardínum, Arnaldur var svo almennilegur í þynnkunni að hann gaf þeim bara allar gardínurnar okkar, þau voru hæstánægð og hættu því við að mæla. Á laugardeginum í geymsluaðgerðinni fann ég mynd af mér fáklæddri þegar ég var 15 ára og sýndi ARnaldi hana og við vorum eitthvað að flissa af myndinni, settum hana svo frá okkur og spáðum ekki meira í það. Haldiði að ég hafi svo ekki komið að öðrum Víetnamska karlinum að skoða myndina mjög áhugasamur, afar sérstakt. Nóg um Víetnam og geymslur ætla í koju



0 Comments:
Sendu inn athugasemd
<< Home