Ég lifi fyrir pelsa..............

Er til kona sem gerir thad ekki..........................

1.29.2004

Allt og ekkert

Það kom að því að gef mér tíma í að skrifa nokkur orð. Finnst ég vera afar upptekin kona þessa dagana. Þyrfti að bæta nokkrum tímum í sólarhringinn. En þar sem ég er mjög sátt við það sem ég er að stússa þessa dagana ætla ég ekki að kvarta. Ég er mjög sátt við nýju vinnuna mína, það tekur vissulega tíma að komast inn í starfið enda mjög fjölbreytt. Að vera forstöðuþroskaþjálfi felur margt í sér og trúlega er það rétt að ef maður vissi fyrirfram hvað starfið felur í sér færi maður líklegast aldrei út í það. Ég myndi samt ekki undir neinum kringumstæðum vilja bakka út úr því. Svo kemur Gulla mín í mars og þá getum við farið að sinna ýmsum málum sem hafa þurft að sitja á hakanum. Baldur Rökkvi er loksins hættur á brjósti og farinn að sofa allar nætur eins og herforingi, þvílíkur lúxus. Við Arnaldur erum núna í svefnþjálfun að læra að sofa heila nótt, langt síðan að við höfum haft slíkan munað. Í gær fór ég í nudd í Baðhúsinu, 90 mínútna lúxus nudd sem Arnaldur gaf mér. Þetta var alveg meiriháttar og ég sveif heim og beint upp í sófa, var ekki viðræðuhæf það sem eftir lifði kvölds. Á morgun er djamm með brjóstaklúbb, jeiiiii. Ætlum að panta mexíkóskan og súpa öl, það verður án efa afar vandað að vanda. Síðustu helgi fór ég að borða á Sjávarkjallaranum sem er nýr staður í Geysishúsinu. Fór að borða með Sibbu og nokkrum öðrum í tilefni afmæli Sigurbjargar. Rosa fínn matur og það sem mér fannst best var að salurinn var reyklaus. Jæja ætla að stoppa nú og setja mér það markmið að vera duglegri að skrifa á næstunni.

Powered by Blogger