Ég lifi fyrir pelsa..............

Er til kona sem gerir thad ekki..........................

9.16.2003

Afmæli og sprækir menn

Mætt að nýju, galvösk. Ánægð með að vera enn á lífi eftir gærdaginn. Eyjólfur minn átti afmæli og bauð öllum bekkjarbræðrum sínum, sem eru 13 samtals. Ég veit alla vega að ef eitthvern tímann hefur hvarflað að mér að verða kennari er það úr sögunni. Þetta voru ekki rólegir og hljóðlátir menn, en þetta fór nú samt allt vel fram. Arnaldur skellti sér með allt liðið út í fótbolta, alveg brilliant. Ágústa mætti á svæðið mér til halds og trausts. Það var mjög fínt. Hún á aðdáenda í hópnum þar sem hún er talin lík Birgittu Haukdal. Hún lenti líka í miklum umræðum við ýmsa menn á svæðinu. Var til dæmis frædd um hestöfl og viðgerðir á bílum. Við Eyjólfur fórum svo í Árbæjarlaug í gærkveldi og var það ansi ljúft. Skrýtið að hann sé orðinn 9 ára, þýðir þetta að ég sé orðin 9 árum eldri en ég var þegar ég var 23. Jú það er víst, en samt ekki slæmt. Finnst í raun miklu skemmtilegra að vera 32 en 23, gott að snúa´bara tölunum við, eftir því hvernig liggur á manni. Eftir afmælið í gær var ég í frágangsham sem er nú ekki í frásögur færandi nema að ég náði að klemma mig illilega á hrærivélinni, það var viðbjóðslega vont, er með tvöfaldan þumal í dag. Já þetta er harður heimur. Ætla að eiga rólegan og góðan frídag í dag. Langt síðan að ég hef átt almennilegan frídag. Var að vinna alla helgina og flaug hún eitthvernveginn í burtu.
Nóg um það í bili.

Powered by Blogger