Ég lifi fyrir pelsa..............

Er til kona sem gerir thad ekki..........................

8.19.2003

Hjolreidar og eldamennska

Dagurinn byrjaði á mjög undarlegan hátt. Ég átti að mæta í vinnuna klukkan sjö, ákvað því að fara snemma í háttinn. Vaknaði klukkan hálf fimm og gat ómögulega sofnað aftur. Dreif mig á fætur, kíkti svolítið í tölvuna, fór í bað og stússaði helling. Ákvað svo að hjóla í vinnuna fyrst ég hafði svona góðan tíma. Komst reyndar að því í Elliðarárdalnum að ég hef ekki hjólað lengi því hjólið var ekki í mjög góðu standi, lint í dekkjunum, gírarnir vanstilltir og svona. En ég lét það auðvitað ekki á mig fá og hjólaði ótrauð áfram í rigningunni og fannst það bara fínt. Var svo orðin ansi lúin eftir vinnu í dag og tókum við Baldur ansi góðan lúr saman. Eldaði snilldar kjúklingarétt í gærkveldi sem ég útfærði úr öðrum rétti, læt uppskriftina fylja með hér og nú:

Innihald:
KJúklingabringur
kjúklingateningur
appelsínusafi
matreiðslurjómi
hvítlaukur
tómatsósa
sítrónupipar
karrý
sósujafnari


Aðferð:
Kryddið kjúllan með sítrónupipar og léttsteikið á pönnu upp úr olíu ásamt hvítlauk. Takið kjúklingabringurnar úr olíunni og setjið í eldfast mót. Bætið appelsínusafa í olíuna og kjúklingatenging og látið aðeins malla. Hellið þessu yfir bringurnar í mótinu og látið inn í ofn þangað til bringurnar eru tilbúnar. Hellið þá vökvanum í pott og bætið rjóma út í . Látið sjóða saman, setjið smá sósujafnara, karrý og tómatsósu út í til að bragðbæta.
Berið fram með hrísgrjónum og baguette.

Ekki kannski nákvæm lýsing á magni og tíma en kemur vel út að gera eftir tilfinningu hverju sinni.

Þetta var uppskriftarhorn Sigþrúðar í boði Sigga Hall

Powered by Blogger