Er að leita að gistingu fyrir fjölskylduna á góðu verði í Danmörku, helst í Kaupmannahöfn eða nálægt. Endilega komið með ábendingar ef þið hafið eitthverjar. Vildum helst fá sumarhús. Skondið að biðja um ábendingar hér, þar sem ég tala við sjálfa mig daginn út og inn á þessari síðu. Fólk virðist koma og skoða síðuna (sýnist mér alla vega á teljaranum) en enginn segir neitt, ekki í Tag né comment. Það væri nú gaman að vita hverjir eru að kíkja á síðuna.
Bless í bili
6.22.2004
6.21.2004
Hross
Gleymdi að taka það fram áðan að úr leiðinni úr sundinu sá ég þrjú hross skokka um Breiðholtið án fylgdarmanns. Afar sérstakt og svo í kvöld var eitt hrossið mætt í Bakkana með heilt stóð af krökkum á eftir sér. Gaman að þessu, lífgar upp á tilveruna, ekki alltaf sem maður sér hross líða um hverfið.
Chao
Sundlaugar
Er alveg búin að fara á kostum í sundferðum í gær og í dag. Langt síðan ég hef farið í sund tvo daga í röð. Fór með strákunum og Dóru og þeim í gær. Fórum í Laugardalslaugina og var það afar vandað. Baldri fannst sérstaklega gaman og sagði bað bað bað hvað eftir annað og furðaði sig á hve margir voru að lúlla í heita pottinum. Fór svo aftur áðan í Breiðholtslaugina. Held mér lítist betur á Laugardalslaugina, það verður lúxus þegar við verðum flutt þangað, þ.e.a.s í næsta hús, en laugin er nánast í garðinum. Nú eru bara tvær vikur í sumarfrí, það verður meiriháttar að komast í frí.
Ef þið viljið panta ykkur eiginmann skuluð þið skoða þetta
6.20.2004
Svefn og sýra
Mú er sunnudagurinn syfjaði mættur á svæðið. Afhverju er ég svona syfjuð, þó ég hafi sofið til 11.30, ekki gott að segja. Við vorum þrjá klukkutíma að svæfa Baldur í gærkvöldi, hann var í miklu stuði og reitti af sér brandarana. Við vorum orðin ansi lúin þegar yfir lauk. Þegar hann loksins sofnaði fannst okkur við þurfa smá tíma fyrir okkur og fórum því alltof seint að sofa. Guðný, Pétur og Steinar kíktu við í gær. Guðný hafði skellt sér í Kvennahlaupið og áskotnast svona fínn bleikur bolur. Ég var mjög sátt við það, fyrst ég fór ekki þá var nú gott að hún fór og hélt uppi heiðri okkar vinkonanna. Frekar langsótt en já Guðný mín þú gerðir þetta fyrir okkur allar, hljópst í nafni vinkvenna þinna í bleikum bol eins og sannri konu sæmir.
Ég hef svolítið gaman af þessari síðu. Þorsteinn er svona létt súr og hægt að hlæja að honum. Nú er Arnaldur kominn inn á Batman.is undir 18.júní og heitir súr maður á Aflagranda. Gaman að því.
Kveð í bili
6.19.2004
Rúðuþurrkur
Fór í gær ég að hitta Brjóstaklúbbinn hjá Elfu. Það var mjög fínt, alltof langt síðan við höfum hist. Ég ákvað að drekka ekki áfengi og er afar sátt við þá ákvörðun í dag. Kvöldið endaði á að Gulla og Bragi fóru á djammið en hinir heim. Ég keyrði þau á Players en það gekk ekki mjög vel þar sem rúðuþurrkurnar eru ennþá bilaðar og rigning úti. Það er ekki gott fyrir svona áttavillta manneskju eins og mig. En með aðstoð farþegana fór þetta allt saman vel fram, nema kannski þegar Gulla bauðst til að stýra. Ég komst þó heil á húfi heim, veit ekki með Gullu og Braga hverju þau hafa fundið upp á eftir að ég skildi við þau.
Í dag er 19.júní sem þýðir að Kvennadagurinn er runninn upp þetta árið. ÉG hefði nú átt að skella mér í Kvennahlaupið en geri að kannski bara næst eða þarnæst, best að vera alveg róleg. Hef einu sinni tekið þátt í Kvennahlaupinu en það var í fyrra. Þá dró Gulla mig með sér og dró mig yfir holt og hæðir, minnir að við höfum tekið 5 km. Hefði frekar átt að hlaupa í ár, þar sem bleikir bolir eru í boði, en bláir í fyrra. Bleikt er meira svona ég. En ætli ég eigi svo sem ekki nóg af bleikum bolum.
Nú fer að styttast í undirskrift á Hraunteignum, næsta þriðjudag fer það fram. Nú eru tvær vikur í Danmerkur- og Svíþjóðar ferð. Verður fínt að komast í sumarfrí og hlaða batteríin. Er að spá í að skella mér í sófann og taka smá lögn þar sem Baldur er steinsofandi á svölunum.
Rúðuþurrkur
Fór í gær að hitta brjóstaklúbbinn hjá Elfu. Það var mjög fínt, alltof langt síðan við höfum hist. Ég ákvað að drekka ekki áfengi og er afar sátt við þá ákvörðun í dag. Kvöldið endaði á að Gulla og Bragi fóru á djammið en hinir heim. Ég keyrði þau á Players en það gekk ekki mjög vel þar sem rúðuþurrkurnar eru ennþá bilaðar og rigning úti. Það er ekki gott fyrir svona áttavillta manneskju eins og mig. En með aðstoð farþegana fór þetta allt saman vel fram, nema kannski þegar Gulla bauðst til að stýra. Ég komst þó heil á húfi heim.
Nú fer að styttast í undirskrift á Hraunteignum, næsta þriðjudag fer það fram. Nú eru tvær vikur í Danmerkur- og Svíþjóðar ferð. Verður fínt að komast í sumarfrí og hlaða batteríin. Er að spá í að skella mér í sófann og taka smá lögn þar sem Baldur er steinsofandi á svölunum.
6.15.2004
Geymsla dauðans
Bloggleti í hámarki þessa dagana, enda mikið að bralla. Eyjólfur fór í Vatnaskóg síðastliðinn föstudag og ætlar að vera í viku. Sýnist þeir ekki vera að fá neitt sérstakt veður, vona að rætist úr því næstu daga. Tengdó kom og var hjá okkur um helgina. Við skrifuðum undir söluna á íbúðinni okkar síðastliðinn fimmtudag. Við eigum að afhenda 1.sept sem er bara mjög gott. En kaupendurnir (Víetnamarnir) þurftu að fá geymsluna strax og það var alveg spauglaust. Við vorum allan laugardaginn í að tæma geymsluna og þeir að fylla hana. Við pöntuðum miðstærð af sendibíl sem við fylltum að dóti til að fara með á haugana. En það var bara dropi í hafið, annað eins var eftir. Nú eru Massi og Arnaldur að flytja það í skúrinn hjá mömmu. Ég skil ekki hvaðan þetta dót hefur komið, þvílíkt safn og geðveiki. Held það verði lítið mál að flytja búslóðina miðað við þetta.
Á laugardagskvöldið fórum við í innflutnings- og útskriftarveislu hjá Sólrúnu og Sigþóri. Afar vönduð veisla eins og þeim einum er lagið. Það var rosa fjör og tók Arnaldur Indíranagasæja af svölunum sem ræðu til Sólrúnar og Sigþrórs, það var mjög skondið, fólk vissi til að byrja með varla hvað það átti að halda . Á sunnudeginum tók við svakaleg þynnka með uppköstum og öllu. Þessi elska hún tengdamamma bjargaði mér alveg með verkjalyfjum og að passa Baldur fyrir okkur á meðan við sváfum. Svo komu víetnamarnir á sunnudeginum aftur til að mæla fyrir gardínum, Arnaldur var svo almennilegur í þynnkunni að hann gaf þeim bara allar gardínurnar okkar, þau voru hæstánægð og hættu því við að mæla. Á laugardeginum í geymsluaðgerðinni fann ég mynd af mér fáklæddri þegar ég var 15 ára og sýndi ARnaldi hana og við vorum eitthvað að flissa af myndinni, settum hana svo frá okkur og spáðum ekki meira í það. Haldiði að ég hafi svo ekki komið að öðrum Víetnamska karlinum að skoða myndina mjög áhugasamur, afar sérstakt. Nóg um Víetnam og geymslur ætla í koju
6.04.2004
Er nú búin að breyta í bleikt, líður mun betur. Er viss um að ég nenni oftar að blogga þegar bleiki liturinn er mættur. Setti líka upp nýtt comment kerfi þar sem hitt var ekki að gera sig. Endilega gefið smá comment, gaman að sjá hverjir eru að kíkja. Eins og þið vitið að þá er ég svolítið forvitin kona. Því konur sem lifa fyrir pelsa eru jú þannig. Mikið finnst mér vandað að það sé kominn föstudagur og helgarfrí framundan.
5.26.2004
´jei jei jei
Svei mér þá ef það er ekki bara kominn tími á skrif. Mikið að gerast hjá mér þessa dagana. Erum búin að kaupa nýja íbúð og selja okkar jei jei jei jei (aðallega jei að vera búin að selja) held það sé komið fínt af Bakkalífinu í bili. Mér skilst að við fáum afhent 15.ágúst, ég er mjög spennt og hef engan tíma í að bíða, vill helst flytja um helgina, en það er svolítið lýsandi fyrir mig, ekki alltaf til í að bíða eftir hlutunum, vill láta þá gerast fljótt. Við fengum kettling í kaupbæti með nýju íbúðinni, sem er bara algjör snilld. Þetta er grá læða og Baldur kallar hana Duddi, veit ekki afhverju. Eyjólfur er aðaleigandi kattarins og bíðum við eftir að hann finni gott nafn á hann. Fórum með Baldur Rökkva í aðgerð í dag, hann fékk rör í eyrun og nefkirtlarnir voru teknir. Ég held að þetta hafi löngu verið orðið tímabært, karlanginn endalaust með kvef og eyrnabólgu. Aðgerðin gekk vel en hann var eftir sig þegar hann vaknaði, en var orðinn hinn hressasti í kvöld. Jæja nóg í bili
2.02.2004
Jæja, er heima í dag með Baldur, honum er illt í mallanum. Ætla reyndar að skreppa í vinnuna þegar ARnaldur kemur. Maður verður svo latur á að vera heima omægod. Fór í búð í gær, þar var unglingsdrengur að afgreiða hann horfði undarlegum augum á mig og spurði svo ert þú svona týpa sem ert alltaf í góðu skapi. Tja afhverju spyrðu segi ég, æ þú ert eitthvernveginn þannig. Sérstakt veit ekki hvað vakti fyrir honum, en ég gat auðvitað ekki annað en brosað.
2.01.2004
Players
Föstudagskvöldið var mjög fínt eins og ég bjóst við. Við pöntuðum mexíkóskan mat sem bragðaðist mjög vel. Fórum á Players og þar var í Svörtum fötum að spila. Jónsi hefur oft farið í taugarnar á mér, það er að segja taktarnir í honum. En hann hafði mig alveg í vasanum þarna á Players. Mjög skemmtileg ballhljómsveit og hann var mjög flottur á sviðinu. Players er mjög sérstakur staður, hef aldrei komið þar áður. Mikið um dularfulla menn í ýmsum holdum og í ýmsum hugsunum. Held reyndar að við Gulla höfum ekki verið kurteisustu konurnar á svæðinu en allavega ekki þær leiðinlegustu. Kom ekki heim fyrr en 5.30 að ég held. Þessi elska hún Elva var á bíl og alltaf jafn jákvæð og viljug að keyra alla hingað og þangað, takk fyrir elsku Elva. Læt staðar numið í bili og ætla að skella mér í ból..........
1.29.2004
Allt og ekkert
Það kom að því að gef mér tíma í að skrifa nokkur orð. Finnst ég vera afar upptekin kona þessa dagana. Þyrfti að bæta nokkrum tímum í sólarhringinn. En þar sem ég er mjög sátt við það sem ég er að stússa þessa dagana ætla ég ekki að kvarta. Ég er mjög sátt við nýju vinnuna mína, það tekur vissulega tíma að komast inn í starfið enda mjög fjölbreytt. Að vera forstöðuþroskaþjálfi felur margt í sér og trúlega er það rétt að ef maður vissi fyrirfram hvað starfið felur í sér færi maður líklegast aldrei út í það. Ég myndi samt ekki undir neinum kringumstæðum vilja bakka út úr því. Svo kemur Gulla mín í mars og þá getum við farið að sinna ýmsum málum sem hafa þurft að sitja á hakanum. Baldur Rökkvi er loksins hættur á brjósti og farinn að sofa allar nætur eins og herforingi, þvílíkur lúxus. Við Arnaldur erum núna í svefnþjálfun að læra að sofa heila nótt, langt síðan að við höfum haft slíkan munað. Í gær fór ég í nudd í Baðhúsinu, 90 mínútna lúxus nudd sem Arnaldur gaf mér. Þetta var alveg meiriháttar og ég sveif heim og beint upp í sófa, var ekki viðræðuhæf það sem eftir lifði kvölds. Á morgun er djamm með brjóstaklúbb, jeiiiii. Ætlum að panta mexíkóskan og súpa öl, það verður án efa afar vandað að vanda. Síðustu helgi fór ég að borða á Sjávarkjallaranum sem er nýr staður í Geysishúsinu. Fór að borða með Sibbu og nokkrum öðrum í tilefni afmæli Sigurbjargar. Rosa fínn matur og það sem mér fannst best var að salurinn var reyklaus. Jæja ætla að stoppa nú og setja mér það markmið að vera duglegri að skrifa á næstunni.
10.01.2003
Say no more
Fór upp á Svæðisskrifstofu í dag og ætlaði að reyna að gera eitthvað gáfulegt en það gekk nú ekki vel. Náði ekki að einbeita mér mikið og sat hálf stjörf fyrir framan tölvuna. Þarf að vera vel upplögð til að rifja upp hvernig forritin virka, eins og ég var nú orðin klár. En bara á meðan ég er í barneignafríi er búið að koma nýjar útgáfur hægri og vinstri. Lengi lifi Boardmaker, er reyndar kominn í nýrri útgáfu sem er reyndar mikil guðsgjöf, því sá gamli var afar laskaður og seinvirkur. Þarf að koma mér betur´inn í þennan.
Úff það er greinilegt að sumarið er farið með öllu. Farið að dimma allt of snemma sem er kannski bara notalegt en ekki þegar hugurinn er ekki í allt of góðum gír. Hvar finnur maður fleiri tíma í sólarhringinn, þar sem maður getur unnið, sofið nóg, sinnt fjölskyldunni, eldað og borðað góðan mat, farið í leikfimi, hitt vinina og átt eitthver áhugamál. Svar óskast.......................................
Need some time.................................................................
9.16.2003
Afmæli og sprækir menn
Mætt að nýju, galvösk. Ánægð með að vera enn á lífi eftir gærdaginn. Eyjólfur minn átti afmæli og bauð öllum bekkjarbræðrum sínum, sem eru 13 samtals. Ég veit alla vega að ef eitthvern tímann hefur hvarflað að mér að verða kennari er það úr sögunni. Þetta voru ekki rólegir og hljóðlátir menn, en þetta fór nú samt allt vel fram. Arnaldur skellti sér með allt liðið út í fótbolta, alveg brilliant. Ágústa mætti á svæðið mér til halds og trausts. Það var mjög fínt. Hún á aðdáenda í hópnum þar sem hún er talin lík Birgittu Haukdal. Hún lenti líka í miklum umræðum við ýmsa menn á svæðinu. Var til dæmis frædd um hestöfl og viðgerðir á bílum. Við Eyjólfur fórum svo í Árbæjarlaug í gærkveldi og var það ansi ljúft. Skrýtið að hann sé orðinn 9 ára, þýðir þetta að ég sé orðin 9 árum eldri en ég var þegar ég var 23. Jú það er víst, en samt ekki slæmt. Finnst í raun miklu skemmtilegra að vera 32 en 23, gott að snúa´bara tölunum við, eftir því hvernig liggur á manni. Eftir afmælið í gær var ég í frágangsham sem er nú ekki í frásögur færandi nema að ég náði að klemma mig illilega á hrærivélinni, það var viðbjóðslega vont, er með tvöfaldan þumal í dag. Já þetta er harður heimur. Ætla að eiga rólegan og góðan frídag í dag. Langt síðan að ég hef átt almennilegan frídag. Var að vinna alla helgina og flaug hún eitthvernveginn í burtu.
Nóg um það í bili.
8.19.2003
Hjolreidar og eldamennska
Dagurinn byrjaði á mjög undarlegan hátt. Ég átti að mæta í vinnuna klukkan sjö, ákvað því að fara snemma í háttinn. Vaknaði klukkan hálf fimm og gat ómögulega sofnað aftur. Dreif mig á fætur, kíkti svolítið í tölvuna, fór í bað og stússaði helling. Ákvað svo að hjóla í vinnuna fyrst ég hafði svona góðan tíma. Komst reyndar að því í Elliðarárdalnum að ég hef ekki hjólað lengi því hjólið var ekki í mjög góðu standi, lint í dekkjunum, gírarnir vanstilltir og svona. En ég lét það auðvitað ekki á mig fá og hjólaði ótrauð áfram í rigningunni og fannst það bara fínt. Var svo orðin ansi lúin eftir vinnu í dag og tókum við Baldur ansi góðan lúr saman. Eldaði snilldar kjúklingarétt í gærkveldi sem ég útfærði úr öðrum rétti, læt uppskriftina fylja með hér og nú:
Innihald:
KJúklingabringur
kjúklingateningur
appelsínusafi
matreiðslurjómi
hvítlaukur
tómatsósa
sítrónupipar
karrý
sósujafnari
Aðferð:
Kryddið kjúllan með sítrónupipar og léttsteikið á pönnu upp úr olíu ásamt hvítlauk. Takið kjúklingabringurnar úr olíunni og setjið í eldfast mót. Bætið appelsínusafa í olíuna og kjúklingatenging og látið aðeins malla. Hellið þessu yfir bringurnar í mótinu og látið inn í ofn þangað til bringurnar eru tilbúnar. Hellið þá vökvanum í pott og bætið rjóma út í . Látið sjóða saman, setjið smá sósujafnara, karrý og tómatsósu út í til að bragðbæta.
Berið fram með hrísgrjónum og baguette.
Ekki kannski nákvæm lýsing á magni og tíma en kemur vel út að gera eftir tilfinningu hverju sinni.
Þetta var uppskriftarhorn Sigþrúðar í boði Sigga Hall
8.18.2003
Jæja vona að þetta sé komið í lag núna með stafina. Var að vinna 10 tíma vakt í gær, sem var bara allt í fínu en frekar lúin að henni lokinni. Frekar gott að eiga frí í dag. Ætla að fara að vinna í að finna eitthvað sérstaklega gott til að elda. Á morgun´fæ ég myndavél sem ég bauð í á e-bay og varð óvart´hæstbjóðandi og varð því að kaupa hana. Ekkert sérstök vél held ég en ekki dýr heldur svo það verður gaman að sjá hvernig hún kemur út. Alltaf gaman að versla svolítið.
8.16.2003
N? s?nist mér a? ?slensku stafirnir séu ekki a? virka lengur, ekki gott. ?tti kannski bara a? blogga ? s?nsku ? sta?inn. Skellti mér ?t ? l?fi? ? g?rkveldi en ?a? heyrir til t??inda. Anna? skipti eftir bur?. ?g f?r til Gullu eftir vinnu og hitti ?ar gamla vinnufélaga. ?a? var st?rf?nt alltaf h?gt a? bulla heil ?sk?p me? ?eim. Skr?ltum svo ? b?inn. Byrju?um ? Torvaldsen sem var bara alveg ?g?tt fyrir f?lk ? okkar aldri. F?rum svo yfir ? Mojitos, sem a? er mj?g dularfullur sta?ur. Vi? ?kv??um a? taka ekki lyftuna en ?urftum ?? a? labba upp ?rugglega 6 h??ir, leit ?t fyrir a? vera sta?ur dau?ans. En ?egar ofar dr? ? stigaganginum f?r a? heyrast t?nlist. ?g ver? n? a? segja a? ekki vildi ég vera st?dd ?arna ef kvikna?i ?. ?a? var skemmtileg t?nlist og gaman a? dansa ?arna. ?a? var l?ka herbergi ?arna inn af sem voru bara p??ar ? g?lfinu en engir st?lar, svona létt hassstemming. Gulla var n?stum b?in a? kippa st?l undan manni, hann snéri sér vi? og var ekki gla?ur og ?a? sem meira er ?etta var enginn annar en K?ri Stef?nsson sj?lfur. ?arna var hann m?ttur me? l?tilli varla tv?tugri buddu sem hann slumma?i af og til. Tja svona er ?etta, kannski hefur hann bara veri? a? erf?abreyta munnvatninu ? henni. Hva? halda svona karlar a? ?eir séu, gr?ir og gamlir, slummandi sm?buddur ?t um allt. ?g myndi ekki vilja slumma K?ra, finnst ?a? ekki spennandi tilhugsun. ? dag f?rum vi? ? nafngiftaveislu hj? Massa og D?ggu ? Kjalarnesinu. ?etta var rosa flott veisla og miki? um manninn. Str?kurinn fékk nafni? 'Oliver M?r, mj?g flott nafn. N? sit ég heima ? menningarn?tt en Arnaldur og Eyj?lfur f?ru ? b?inn. ?g var mj?g s?tt vi? a? vera bara heima, t?k ?t b?jarst?ssi? ? g?r. Er h?lf ?reytt, ekki v?n a? vaka svona lengi og hva? ?? a? drekka. ? lei?inni heim ? leigub?lnum ? g?r f?r ég a? hugsa hva? ég v?ri ?s?tt vi? a? vera drukkin og hvernig ég g?ti l?ti? renna af mér ??ur en ég f?ri a? sofa svo ég yr?i ekki ?unn. ?G t?k B-v?tam?n ?egar ég kom heim og drakk vatnsglas ?kva? a? ?a? g?ti haft eitthva? a? segja. ?g veit ekki hvort ?a? var ?v? a? ?akka e?a ??ru en ég vakna?i alveg ??unn me? ?llu ? morgun, bara p?nu ry?gu?. Best a? fara a? hv?la sig er a? fara a? vinna fr? 12-22 ? morgun.
8.12.2003
Jæja komin tími á skrif. Er byrjuð að vinna aftur, dálítið skrítin tilfinning eftir að hafa verið heima svona lengi, en samt ágætt. Líst allavega vel á vinnustaðinn. Finnst líka ágætt að þurfa ekki að mæta fyrr en seinnipartinn, gott að geta verið heima í rólegheitum fyrri part dags. Ætlaði bara svona að deila þessu.
Chao chao
6.12.2003
Hebbi sjálfur
Að gefnu tilefni verð ég að taka það fram að ég sá Herbert Guðmundsson í bankanum í gær. Hann talaði mjög hátt í símann og var að redda heiminum. Ropaði síðan eins og slagsíðutogari þegar hann gekk fram hjá mér. Sannkölluð stjarna, var þó ekki með poppgleraugun.
Textílmennt og Mjóddin
Hef ákveðið að halda mig bara við þessa síðu, mun skemmtilegra. Látið bara sem hin hafi aldrei komið til skjalanna. Ég er of trygglynd fyrir svona flutninga. Held líka að íslenska síðan sé bara fyrir óharðnaða unglinga. Nú er Eyjólfur minn farinn í Vatnaskóg í heila viku. Hann verður örugglega háheilagur þegar hann kemur heim. Hann átti að taka nýja testamentið með sér, við Arnaldur áttum hvorugt tiltækt eintak. Skil reyndar ekkert í því er alltaf með það á náttborðinu hjá mér. Eyjólfur greyið ætlaði að redda málunum og spurði Mats hinn sænska hvort hann gæti lánað sér textílmenntið, Mats vissi auðvitað ekki hvað hann var að tala um. Svo Eyjólfur fór Textílmenntlaus í Vatnaskóg, vona að þeir nái samt að frelsa hann : - ). Ég skellti mér í göngu með vagninn í góða veðrinu áðan, endaði í Mjóddinni sem aldrei fyrr. Það var afar áhugavert, samansafn af furðulegheitum. Byrjaði á að ganga fram á tvo róna í heitum samræðum. Mundi þá eftir að hafa séð Lalla Jóns þarna annað slagið. Fór svo í Nettó, þar sá ég strák eða mann sem var með mér í F.Á, hann var með stuðningskonu með sér að versla. Ég fór þá að hugsa hvað heimurinn getur verið vondur. Því þegar við vorum í F.Á voru alltaf einhver fífl að stríða honum og allir flissuðu, ég örugglega líka. En í dag þegar ég er stödd í Mjóddinni orðinn þroskaþjálfi og aðeins vonandi búin að vaxa upp úr menntaskólaárunum sá ég málin í nýju ljósi. Ég fór að hugsa hvernig væri best´að halda á spilunum til að auka lífsgæði þessa manns sem margt býr svo í. ÉG var komin með gott plan í hugann. Sérstakt, ekki alveg dottin úr bransanum þrátt fyrir að vera í fæðingarorlofi. Næst gekk ég fram á mann sem stakk handáburð í vasann sem hann tók úr einni hillunni. Ég var eitthvað svo hissa að mér varð starsýnt á hann eins og mér einni er lagið. Þá varð hann mjög skömmustulegur og skilaði handáburðinum, ekki það að mér hafi ekki verið drullusama. Á leiðinni út úr Mjóddinni tók hver vitleysan af annarri við. Maður á miðjum aldri að selja Herbalife súkkulaði, bauð meira að segja smakk. Ég var nú bara hálf fegin að komast heim úr þessari vitleysu, já ekki er nú öll vitleysan eins, kannski sem betur fer.
6.03.2003
BREYTING
HEF FLUTT BLOGGIÐ Á AÐRA SÍÐU VINSAMLEGAST KÍKIÐ YFIR
5.30.2003
KONA EÐA MERI
Var á gangi í dag með kerruna og Eyjólf á hjóli. Var að fara yfir á gangbraut og það var mikil föstudagsumferð. Keyrði þá ´bíll fram hjá fullur af unglingum og einn síðhærður stakk út hausnum og kallaði: farðu frá feita meri. Ég labbaði mjög róleg yfir sýndi engin viðbrögð en fattaði svo allt í einu að hann var að tala við mig, var enginn annar á svæðinu. Þá fattaði ég að væri orðin kona, því mér fannst þetta mjög fyndið. Gott að fatta að maður sé kona þegar manni er sagt að maður sé meri.
5.22.2003
Tja
Jæja svo Dóri blessaður ætlar að setjast í sætið hans Davíðs, eins og við mátti búast. Karlanginn, hann hefur nú ærna ástæðu til að brosa, kannski of spenntur til þess. Svei mér þá ef þetta gæti ekki komið af stað erótískum draumum um hann. Eða varla, það væri nú frekar slæmt, ekkert skemmtiatriði. Skellti mér í skokk í gær og var hæstánægð með það, frábært að hlaupa svolítið í góða veðrinu, sérstaklega eftir á. ´Gyða kom til mín í kvöld og var voðalega gott að sjá hana og þurftum við mikið að spjalla, langt síðan við höfum hist. Arnaldur minn fór aftur til Akureyrar í dag að klára verkefnið. Hefði nú alveg viljað hafa hann heima hjá mér en maður getur víst ekki fengið allt í þessu lífi. Ég hef það örugglega allt of gott, geri þess vegna kröfur um ótrúlegustu hluti. Best að hætta og svífa í draumalandið, vona samt að ég hitti nú ekki Halldór þar.
5.21.2003
Halldór sjálfur og Hagkaupssloppar
Þá er nú kominn tími á skriftir að nýju. Matti minn ég þakka commentið ég mun að sjálfsögðu snúa mér að hrærðum eggjahvítum í framtíðinni, hafði bara ekki dottið það í hug fyrr. Hver borðar ristað brauð með sultu þegar hægt er að nærast á eggjahvítum, fullum af próteini. Við vorum að koma heim frá Akureyri. Arnaldur var að vinna þar í nokkra daga og skellti ég mér til hans með drengina. Það var fínt að breyta aðeins um umhverfi og alltaf notalegt að vera á Akureyri. Gæti alveg hugsað mér að búa þar einhverntímann í framtíðinni. EN það var nú alveg excellent að komast heim aftur, eins og ég var nú orðin þreytt á að hanga heima áður en ég fór, nú finnst mér heimilið mitt besti og skemmtilegasti staður í heimi. Nú þarf ég að setja upp húsmóðursvipinn, fara í hagkaupssloppinn, setja í mig rúllurnar og fá mér eina rauða stonrettu. Mjög mikilvægt á þessum tímapunkti í heimilisdýrkuninni. Tók eftir því að í sjónvarpinu í gær að Halldór Ásgrímsson er búinn að týna brosinu að nýju, eins og hann var farinn að sýna tennurnar oft í baráttunni. Þetta hefur verið honum um megn. Hvernig ætli það sé að vakna við hliðina á manni eins og Halldóri................ Ekki gott að segja, held ég sleppi því að reyna það, ekki það að mér standi það til boða. Er komin út á hálan ís, tek það fram að mig dreymir ekki erótíska drauma um Halldór. Kveð að sinni og skelli mér í slopp.
5.07.2003
Te og rist
Er eðlilegt að borða ristað brauð með osti og sultu á hverjum degi í næstum því hálft ár og finnast það alltaf jafn gott. EKki gott að segja verður maður kannski bara svona fastheldinn og nægjusamur með aldrinum.............. Tja en vill einhver elllllllllllska 31 árs gamla konu sem safnar ristabrauðum. Væri kannski gott að fá hugmyndir af eitthverju fjölbreytilegra. Best að fara út í slagveðrið og vaða eld og brennistein. Gæti víkkað sjóndeildarhringinn. Kominn tími til, sérstakt að vera svona heimavinnandi maður missir eitthvernveginn takt við raunheiminn. Fókusinn verður miklu þrengri, ekki endilega að það sé eitthvað slæmt bara annað en maður er vanur. Reyni allavega að lesa blöðin og kíkja á fréttirnar, svona aðeins til að geta verið með og haldið uppi umræðum ef ég skildi mæta fólki á förnum vegi. Ætla að reyna að komast í bíó í kvöld með Gústunni. Hún er reyndar í heimaprófi en þarf kannski pásu, má ekki læra yfir sig mjög slæmt.
Bless í bili
5.05.2003
Ég er ekkert leið þó enginn commenti á bloggið mitt, samt komnar 176 heimsóknir. Ég hlýt að þekkja svona hljóðlátt og hógvært fólk. Væri nú samt kannski gaman ef eitthver myndi kvitta í gestabókina vinstra megin. Ætlaði bara að neeeeeeeeeeeeeeeeefnaaaaaaaaaaaa það.
Jeppar í líki manna
Á laugardagskvöldið komu Sólþór og Sigrún í heimsókn ásamt Neytendanum. Alltaf gaman að fá þau í heimsókn, vandað fólk. Við tókum spil, öl og rauðvín, sem sagt eðal kvöld. En ty. klo. and. ég held að ég sé komin með eitthvað ofnæmi fyrir vissum tegundum af víni og þar á meðal Corona sem að er ekki nógu gott, þar sem það er uppáhaldsbjórinn. Ég verð öll eldrauð í framan ef ég drekk. Þetta eru kannski æðri máttarvöld að taka í taumana, vegna taumlausrar drykkju síðustu ára. Kominn tími til að staldra við og leggja Bakkus á hilluna. Ætli ég verði þá ekki bara að byrja að reykja í staðinn. Ætla að íhuga það vandlega. Hvað um það Sigþór og Sólrún eru nú búin að fjárfesta í jeppa. Ég var nú í raun hálfhissa á að þau skildu ekki vera búin að því fyrr. Finnst það nefnilega hæfa þeim svo vel. Fólk með tjaldvagn og svoleiðis. Nú er ég viss um að garðhýsið fer að rísa fyrst jeppinn er komin, það hlýtur að fara saman. Nú leggjast útilegurnar í tjaldvagninum eflaust á hilluna, því næsti viðkomustaður hlýtur að verða hálendið. Þó jeppinn sé ekki breyttur er ég viss um að hann verður það fljótlega. Ég sé alveg Sigþór fyrir mér í gallanum fyrir utan Hlíð að bardúsa við jeppann og já gott ef ég sé ekki líka fyrir mér Sólrúnu með í því. Eða kannski bara frekar að Sólrún fari í jeppabreytingar því hún er svo rokkuð að sögn neytendans. En Sigþór minn þú ert enginn lúði, þú ert mjög rokkaður líka. Sérstaklega eftir að þú fékkst þér gaddana og gítarinn. Þetta var Sólþórs hornið í boði Sigþrúðar. Á sunnudaginn komu geypack og pössuðu fyrir okkur. Því við þurftum að bregða okkur úr húsi. Þau stóðu sig eins og hetjur mjög foreldraleg, fór þeim bara vel. Þrátt fyrir að barnið hafi sofið á gólfinu hjá þeim ; ) Skellti mér með Gyðu í Smárann í dag, síðustu forvöð þar sem henni datt í hug að ráða sig í fulla vinnu, þrátt fyrir að ég væri í fæðingarorlofi. Skil ekkert í henni að ætla að hafa mig eina í baráttunni. Ég verð víst að sætta mig við þetta, svona er nú lífið. Jæja best að fara í hátt, gott að hafa þann háttinn á fyrst þessu er svona háttað, en hafið ekki hátt um það, eða svoleiðis. . Brynja ég elllllllllska þig.
4.29.2003
Það er ýmislegt sem heimavinnandi konum í barnaeignafríi getur dottið í. Stóð sjálfa mig að því áðan að vera að horfa á Oprah Winfrey þátt sem var afar dramatískur að vanda. Ég var allt í einu niðursokkin í þáttinn og næstum því farin að kinka kolli eins og konurnar í salnum, því ég var svo skilningsrík. Mjög sérstakt held ég verði að fara að virkja andann og finna mér eitthvað annað til dundurs. T.d að skella mér í vorhreingerningu, væri það ekki excellent? Alla vega lítur það vel út í rituðu máli, veit ekki hvernig það mun ganga í framkvæmd, en það er alltaf gott að láta sig dreyma. Er að reyna að vera í hollustunni þessa dagana og leggja nammið á hilluna. Vá það er erfitt en nú er um að gera að grafa gamla sjálfsagann upp úr veskinu og láta til sín taka. Ætla meira að segja að skella mér í leikfimi í kvöld. Ég er viss um að eftir mánuð verð ég farin að ganga í bikíní niður Laugarveginn. Hverf frá í tiltekt..............................
4.27.2003
´Well. Lauk námskeiðinu í gær, mjög spennandi, get nú farið að brugga nornabrugg hægri og vinstri, ýmsar leiðir í boði. Fór á kaffihús með Gullu í gærkveldi. Mjög langt síðan að ég hef verið á kaffihúsi á laugardagskveldi. Finnst reyndar að ég hafi nú ekki misst af miklu en það var mjög gaman að spjalla við Gullu og gátum við talað endalaust eins og alltaf. Vorum meira að segja enn í æfingu með að tala hátt út af tónlistinni og reyknum. Læt þetta nægja í bili andinn ekki til staðar.
4.25.2003
Við skelltum okkur í ísskápakaup og keyptum einn þurrkara í leiðinni. Mjög skemmtilegt, fáum reyndar ekki þurrkarann fyrr en eftir viku. Ágústos kom með okkur í þennan leiðangur og sá B.R fyrir félagsskap, alger snilld hún Ágústa mín; ég skal bara passa fyrir þig, ég get alveg unnið fyrir þig, ég bara þvææææææææ etta fyrir þig. Svona er hún þessi elska, það ættu allir að þekkja eina Ágústu. Takk fyrir að vera til Ágústa. Þetta var aðdáendahorn Ágústu í boði Sigþrúðar. Í morgun fór ég og hitti Bylgju tilvonandi yfirmann minn. Við ræddum málin og ákváðum vinnufyrirkomulagið. Mér líst rosalega vel á þennan vinnustað og líka á Bylgju, hlakka til að byrja þarna. Í kvöld fór ég á framhaldsnámskeið í ilmkjarnaolíufræðum (vá virðulegt orð). Ég sat þar á gólfi í eitthverjum yogastól með nokkrum mjög djúpthugsandi konum. Ég reyndi að setja upp gáfumannasvipinn sem felur hvað maður veit lítið. Ég fór sko á grunnnámskeiðið fyrir ´7 árum og þó minnið sé sérstakt þá er það ekki ryðfrítt. Námskeiðið var mjög áhugavert og skemmtilegt og er framhald á morgun. Aumingja Arnaldur var heima með börn og bú í tiltektum með kvef Satans. Ekki gott upplit á þessari elsku en samt svo duglegur. Nú gengur hann um með eldhúsrúllu í nefinu því hann nennir ekki að vera alltaf að snýta sér. Læt þetta nægja í bili og hleypi kvefaða vinnumanninum við skjáinn.
4.24.2003
Ótrúlegt hvað hægt er að finna á netinu, það er eiginlega hægt að finna hvað sem er. Fékk frænkusímtal frá Gústunni, svona týpiskt Gústu símtal. Hún var í vinnunni og var að reyna að finna mann sem stelpa sem vinnur með henni höslaði og mundi ekki hvað hét en var með mynd af honum. Afar sérstakt en Ágústa kannaðist við kauða og fékk mig í lið með sér að finna út nafnið. Við föttuðum nafnið og svo var hann fundinn á netinu og jú þetta var sami maðurinn og stelpan hafði höslað. Fundu upplýsingar um að hann tekur að sér aukatíma í stærðfræði, gott að vita það og öllum leið mun betur :) Talaði aftur við Ágústu í kvöld og tjáði hún mér það að hún hafi verið svo þreytt að hún sofnaði í dúnúlpunni þegar hún kom heim úr vinnunni, já það er erfitt að vera í vinnu og þurfa að taka að sér aukaverkefni eins og að finna út hver svaf hjá hverjum. Gummi vinur Nalda sem býr í Kaupmannahöfn var í heimsókn í dag. Þeir fóru út að labba með Rökkva í einn og hálfan tíma og ég steinsvaf á meðan, afar vandað. Denni tölvusnillingur borðaði hjá okkur í kvöld og svaraði mörgum ósvöruðum tæknilegum spurningum um tölvumál. Best að fara í hátt
4.23.2003
Carsten sem heitir ekki Morten kom í gærkvöldi með tæki dauðans til að gera við ísskápinn. En það varð nú eitthvað lítið úr því þar sem Carsten sjálfur úrskurðaði ísskápinn látinn. Svo við erum ísskápslaus, verðum að notast við svalirnar en það er bara svo hlýtt úti að það gagnast ekki alveg. Hvað er lífið án ísskáps? Jú reyndar er það ágætt ef maður á nýjan og spennandi síma. Við fórum í morgun að skoða ísskápa hjá Rönning og Raftækjaverslun Íslands. Sáum mjög flottan ísskáp á 60.000 hjá Raftækjaverslun Íslands og líka þurrkara á mjög góðu verði. Lítur út fyrir að skynsemin nái hámarki og við kaupum þurrkarann og fáum notaðan ísskáp. Spurning hvernig þetta verður. Fórum líka og hittum mjög dularfullan mann sem seldi notaða ísskápa upp á höfða og ýmislegt annað dót. Okkur leist ekkert á það. Ég skellti mér í göngu í dag með BR og nýja símann, mjög skemmtilegt gat hlustað á útvarpið á meðan. Hittum svo Gyðu og Ingu Maríu í Leikbæ. Þær komu með okkur heim í kaffi og var það mjög notalegt. Læt þetta nægja í bili
4.22.2003
Jæja loksins lét ég verða af því að fara og fjárfesta í nýjum síma, jeiiiiiiiiiiiiiiiiii. Ég var svo óheppin að missa hinn, hann virkaði reyndar þannig að hægt var að hringja í hann og úr honum. En það sást ekkert á skjáinn og það náttúrulega gengur ekki fyrir símakvendi eins og mig, er til kona sem getur lifað símalaus?????????? Mér finnst erfitt að ímynda mér það. Kom svo aðeins við í Benetton og keypti einn bleikan bol, en það var alveg bráðnauðsynlegt, svona í stíl við símann. Sibba hin breska og Elva sæta komu með mér í símaleiðangurinn og höfðu ofan af fyrir Baldri á meðan ég ræddi símamálin við starfsmann sem var ekki kosinn starfsmaður mánaðarins vegna skorts á þjónustulund og brosleysis. En hvað um það síminn er snilld og þegar kominn í hleðslu. Ætla að reyna að fara út á kaffihús í kvöld með henni Gullu minni. Hlakka mikið til að komast út og líka til að hitta Gullu auðvitað. Var alltof mikið inni við um páskana. Frábært veðrið í dag, bara sumarveður. Æji varð aðeins að fá að tala um veðrið. Ætla núna að fara og reyna að læra alla nýju fídusana á símanum jeiiiiiiiii.
Luv
4.21.2003
Sérstakt.... hélt ég væri orðin svo mikið tölvugúrú en komst að því að það er rangt. Var að reyna að setja upp commentkerfi og tókst það en á mjög sérstakan hátt á undarlegum stað og svo get ég ekk itekið það út aftur, afar sérstakt. Svo langar mig líka til að breyta útlitinu á síðunni en er ekki alveg að fara á kostum þar heldur. Ekki gott, verð að fá Arnald í lið með mér að skoða þetta, viss um að hann á eitthverja töfralausn handa mér. Annars var gærdagurinn alveg excellent og kalkúnninn sjúklega góður og gaman að borða hann með öllu þessu skemmtilega fólki. Já og franska súkkulaðitertan hennar Ágústu var snilld þrátt fyrir olíuna, takk fyrir það Ágústa. Ætla inn í rúm að leggja mig, Arnaldur var að fara með Baldur Rökkva í heimsókn til pabba síns. Annað sinn sem að ég er ein heima síðan að Baldur fæddist. Best að nota tækifærið og sofa svolítið, það er það sem ég dreymi um þessa dagana svefn, svefn og aftur svefn. ZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZZ
Fer í draumfarir Sigþrúður sofandi


